Hvaða réttindi færðu?

Almenn ökuréttindi, flokkur B veitir þér heimild til að aka:

  • fólksbifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna og með sæti fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns
  • sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna
  • fólksbifreið eða sendibifreið með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd
  • fólksbifreið eða sendibifreið með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins
  • dráttarvél
  • vinnuvél (mátt ekki vinna á hana nema hafa öðlast sérstök vinnuvélaréttindi)
  • léttu bifhjóli (skellinöðrur, 50cc)
  • bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum
  • torfærutæki s.s. vélsleða, torfærubifjóli.

Vissir þú...

Það er alveg ljóst að eftir því sem hraðinn er meiri þeim mun alvarlegri verða afleiðingarnar ef til áreksturs eða útafaksturs kemur.

Þá eiga ökumenn enn fremur erfiðara með að bregðast við á öruggan hátt þegar eitthvað óvænt kemur upp á í umferðinni. Hemlunarvegalengd bílsins verður lengri og meiri hætta á því að ökumaður missi stjórn á ökutækinu.

--Umferðarstofa