Námið

Ökunámið er tvískipt, bóklegt nám og verklegt nám.  Bóklega námið fer fram í ökuskóla og er tvískipt, Ökuskóli I og Ökuskóli II.  Samtals er bóklega námið að lágmarki 24 kennslustundir.

Verklega námið er að lágmarki 16 kennslustundir.

Í verklegri kennslu er verið að æfa leikni og öryggi ökunema á ýmsum þáttum umferðarhegðunar.

Verklega kennslan tekur tíma og gott er að gera ráð fyrir því.

Ökukennari sendir nemenda ekki í æfingaakstur fyrr en hann er orðinn öruggur með að nemandinn sé orðinn þjáll og meðvitaður um hvernig umferðin gengur fyrir sig og geti keyrt undir leiðsögn foreldra/leiðbeinanda.

Í lok verklegrar kennslu fer ökukennari yfir ferlið með foreldra/leiðbeinanda.

Foreldri/leiðbeinandi fer með í síðasta tíma fyrir æfingaaksturinn.

Foreldri/leiðbeinandi fær æfingaakstursmerki og uppáskrifaða ökunámsbók.

Vissir þú...

Ökumenn á öllum aldri stunda hraðakstur en ofsaakstur á aðallega við um ökumenn á aldrinum 17-24 ára. Ætlar þú að verða einn af þeim?