Fróðleiksmolar í boði Ökukennslu Reykjavikur

Akstur um hringtorg

Meginreglan er sú að sá sem ætlar að beygja út úr torginu á fyrstu gatnamótum, skal undantekningarlaust vera á hægri akrein, það er að segja á ytri akreininni í hringtorginu.

Nánar

Hemlunarvegalengd

Það er ljóst að því hraðar sem ökutæki er ekið þeim mun meiri líkur eru á að illa fari ef árekstur eða annað umferðaróhapp á sér stað. Hraðinn getur skipt sköpum jafnvel þó að ekki sé nema um lítilsháttar aukningu frá leyfðum hámarkshraða að ræða.

Nánar

Bílarnir

Vissir þú...

Það er alveg ljóst að eftir því sem hraðinn er meiri þeim mun alvarlegri verða afleiðingarnar ef til áreksturs eða útafaksturs kemur.

Þá eiga ökumenn enn fremur erfiðara með að bregðast við á öruggan hátt þegar eitthvað óvænt kemur upp á í umferðinni. Hemlunarvegalengd bílsins verður lengri og meiri hætta á því að ökumaður missi stjórn á ökutækinu.

--Umferðarstofa